A-Z Lyrics Database
Welcome! Login | Register
Lyrics   »   W   »   Wormlust Lyrics   »   Djöflasýra Lyrics

Wormlust - Djöflasýra Lyrics

Font:      
Align:    
  • Það hefur tóm augu,
  • drekkandi ódáinsveigar,
  • veitandi sýnir.
  • Óhugnaðurinn, fegurðin - allt þetta gall.
  • Kjaftur þessi gleypir allt,
  • öllum sökkt er ofan í svaðið.
  • Ormétnir líkamar engjast um,
  • hér er vaðið er í gegnum öskuna.
  • Klökkar eru hendurnar,
  • líkkistur neglurnar,
  • engin handfesta finnst í kórónu keisarans.
  • Finn ég á þessari stundu hvernig grafir okkar snertast.
  • Hin dýrslega viska,
  • rekur í sundur sálir og magnar upp sáluhliðin,
  • helblóm spretta í augnatóftum þess.
  • Í höfði skepnunnar eru svartir salir,
  • niðamyrkir gígar,
  • ærandi víddir þjáninga.
  • Óteljandi.
  • Það rís úr hafinu ,
  • eins og krabbamein.
  • Jarðarfararsálmur sem er leikinn á innyfli,
  • sultarhljóð sem fyllir himindjúpin.
  • Án hugsunar.
  • Þungt gnæfir þessi draummynd yfir alheimnum,
  • sem skinnhvítt rekald.
  • Í hvítlogandi flæðarmáli stjarnanna,
  • andað inn sem myrkri.
  • Dragsúg tómleikans.
  • Sálnahirðir úr fjólubláum reyk,
  • sem með heljargreipum sínum fer um helgidóminn,
  • bakvið dánargrímu,
  • undir flogaveikum básunuþyt.
  • Sannleikans eilífa djúp,
  • þar er bæli dýrsins,
  • vitfirring kæfð í reyk.
  • Frýs blóðþyrst hjartað.
  • Opnast dauðans gin,
  • Hungurvofunnar slóð,
  • hún er kviðrist og köld,
  • hér hægist andardráttur,
  • sést frosin mánamóða.
  • Þúsund stjörnur loga,
  • undir dökku kufli.
  • Skarlatshjúp.
  • Umlykur dauðans myrkur.
  • Enni þess markað máttugum rúnum,
  • gullnir hlekkir glitra.
  • Fannhvítir faðmar vinda tannhjólin,
  • sligast undan klukknanna þunga hljóm,
  • beinanna klið.
  • Tungan er hljóð,
  • starir út í tómið og umritar ósagðar reglur.
  • Slæðingur þessi sameinast óminnishegranum.
  • Hugdettur um að vakna upp frá martröðinni,
  • hugmyndir um tilveru innan holds;
  • rifnar í sundur af hröfnum.
  • Formlaust,
  • Svífur sjálfið yfir vötnunum,
  • ferðast út úr helli ofskynjanna,
  • fyrst sem seiður.
  • Út í gegnum gimsteinalagt höfuðið.
  • Úr munni þess sem biturt tvíeggjað sverð,
  • með sex vængi alsetta augum;
  • sem vitnisburður.
  • Sem sneiðir í sundur glerhafið,
  • skilin á milli raunveruleika og martraða.
  • lastmæling sem stígur upp úr undirdjúpum vímunnar,
  • ferðast í gegnum víddir.
  • Frá holdi til spádómsorða sem kollvarpa hásætum.

  • Report error in lyric




    The Djöflasýra lyrics by Wormlust is property of their respective authors, artists and labels and are strictly for non-commercial use only.
    Copyright © 2009-2026 Azlyricdb.com. All Rights Reserved | Privacy policy | Blog
    You are now viewing Wormlust Djöflasýra Lyrics